الوصف
Eftir harkalegan skilnað stendur Sonja uppi allslaus og ráðalaus. Það eina sem hún á er sonurinn Tómas sem hún fær ekki að hitta nema þegar pabba hans hentar. Í örvæntingu leiðist hún út í eiturlyfjasmygl; fyrir ágóðann vonast hún til að geta búið Tómasi gott heimili. Og Sonja er snjall smyglari og kemst upp með ótrúlegustu hluti. Allt þar til hún vekur athygli Braga, tollvarðar sem er að fara á eftirlaun. Sonja heitir sjálfri sér því að hver smyglferð sé sú seinasta. Hana langar bara að vera með drengnum sínum og rækta brothætt ástarsamband við bankastarfsmanninn Öglu. En til þess þarf hún að sleppa úr gildrunni … Lilja Sigurðardóttir hefur áður sent frá sér tvær glæpasögur, Spor og Fyrirgefningu, og árið 2014 hlaut hún Grímuverðlaun fyrir frumraun sína í leikritaskrifum, Stóru börnin, sem valið var leikrit ársins.
تفاصيل الكتاب
تنسيق
كيندل
صفحات
260 صفحات
لغة
الإنجليزية
منشور
ديسمبر 1, 2015
الناشر
Forlagið
الطبعات
2 طبعات
رقم ISBN-10
9935115879
رقم ISBN-13
9789935115874