Buchdetails
Beschreibung
Írakinn Ali situr innilokaður í leiguíbúð í borginni og bíður eftir tækifærinu sem á að skapa fjölskyldu hans nýtt líf í Svíþjóð. Hann þarf bara að gera eitt viðvik fyrst - og enginn má vita erindi hans til landsins.
Hinum megin á hnettinum, á strætum Bangkok, berst ung sænsk kona fyrir tilveru sinni. Einhver er fast á hælum hennar og virðist hafa girt fyrir allar undankomuleiðir. Og klukkan tifar...
Kristin Ohlsson sló í gegn með fyrstu spennusögu sinni, Utangarðbörnum. Baldursbrár hefur einnig hlotið frábærar viðtökur og var tilnefnd til Sænsku glæpasagnaverðlaunanna 2010.