Buchdetails
Beschreibung
Fljótlega eftir útkomu „Eyjabókanna“ var gert eftir þeim leikrit og sýnt við mikla hylli. Eins hafa þær verið kvikmyndaðar: Einar og Friðrik Þór Friðriksson skrifuðu handrit Djöflaeyjunnar sem var frumsýnd 1996. Nú hefur einnig verið saminn söngleikur byggður á bókunum.
Einar Kárason er meðal allra vinsælustu höfunda þjóðarinnar og margverðlaunaður. Hann hefur meðal annars verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fjórum sinnum og jafn oft til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sem hann hlaut 2008.
Bækur hans hafa verið gefnar út víða erlendis.