Beschreibung
Refsingar voru grimmilegar og síðasta aftaka fyrir dulsmál fór fram árið 1792. Í þessari bók eru birtir í heild fjórtán dulsmálsdómar úr héraði þar sem málsatvik koma skýrt fram. Í ítarlegum inngangi fjallar Már Jónsson, dósent í sagnfræði við Háskóla Íslands, um dulsmál almennt, rekur atburðarás, útskýrir aðstæður hinna sakfelldu og gerir grein fyrir réttarþróun bæði hér á landi og erlendis. Skrá fylgir um þau rúmlega 100 mál sem komu fyrir rétt á Íslandi.
Már Jónsson bjó til prentunar og ritar formála.
Háskólaútgáfan gefur bókina út í samvinnu við Sagnfræðistofnun.