Beschreibung
Martin Widmark er einn vinsælasti barnabókahöfundur Svíþjóðar og bækur hans hafa verið þýddar á yfir tuttugu tungumál. Spæjarastofa Lalla og Maju er flokkur sjálfstæðra sagna með litríkum myndum Helenu Willis. Fyrsta sagan, Demantaráðgátan, kom út á íslensku haustið 2014 og var afar vel tekið, bæði af gömlum gagnrýnendum og ungum lesendum.
Íris Baldursdóttir þýddi.
„Demantaráðgátan er frábær bók fyrir yngstu lesendurna, þessa sem eru nýlega læsir og treysta sér ekki í þéttskrifaðar blaðsíður og smátt letur.“
María Bjarkadóttir / Bókmenntir.is