Í ársbyrjun 2006 eru framin óhugnanleg morð í litlu þorpi í Svíþjóð þar sem eingöngu býr gamalt fólk. Í ljós kemur að allir hinir myrtu eru skyldir; öðrum þorpsbúum var hlíft. Kunnur ofbeldismaður játar á sig verknaðinn en Birgitta Roslin dómari trúir honum ekki. Hana grunar að kínverskur maður sem dvaldi eina nótt á litlu hóteli í nærliggjandi bæ tengist þessum hrikalegu glæpum. En hvers vegna ætti gestur frá Kína að drepa sænska eftirlaunaþega? Sögunni víkur allt aftur til miðrar 19. aldar þegar kínverskir karlar voru fluttir tugþúsundum saman yfir hafið til Ameríku og látnir vinna við lagningu járnbrautar við þrælakjör. Gamlir glæpir gleymast ekki. Henning Mankell hefur farið víða í tíma og rúmi en í Kínverjanum sem vakið hefur athygli fyrir glögga sýn á pólitíska þróun í heiminum. En fyrst og fremst er sagan afar spennandi ? togar í lesandann og lætur hann ekki í friði fyrr en hann gleypir í sig síðasta orðið.
Format
Kindle
Seiten
560 Seiten
Sprache
Isländisch
Veröffentlicht
Jan 4, 2023
Verlag
Forlagið
Ausgaben
49 Ausgaben
ISBN-10
9979349603
ISBN-13
9789979349600