Beschreibung
Kona á þrítugsaldri er stungin til bana á heimili sínu í Stokkhólmi. Allt bendir til þess að barnsfaðir hennar, meðlimur í glæpagengi og þekktur ofbeldishrotti, sé sá seki. En Vanessu Frank hjá rannsóknarlögreglunni grunar að málið sé alls ekki svo einfalt enda bakslag í MeToo-byltingunni áþreifanlegt og vaxandi fylgi kvenhataranna í stafrænu Incel-hreyfingunni vekur ugg. Og þeir láta sér ekki allir nægja að fá útrás fyrir hatrið við tölvuna …
Pascal Engman (f.1986) hefur sópað að sér verðlaunum og viðurkenningum síðan hann gaf út fyrstu glæpasöguna árið 2017. Meðal annars hlaut Rottukóngurinn bresku Petrona-verðlaunin 2023 og bækur Engmans hafa verið þýddar á meira en 20 tungumál.
Sunna Dís Másdóttir þýddi.