Saga augans

Saga augans

Noch keine Bewertungen
2001 · Isländisch · Gebundene Ausgabe
Zum Regal hinzufügen

Bewerte dieses Buch


Buchjournal exportieren

Beschreibung

Saga augans er ein þekktasta frásögn heimsbókmenntanna. Unglingarnir Simone og sögumaður kynnast í strandbænum X... og takast á hendur ferð inn í innstu myrkur sinna eigin nautna. Í stórkostlega skáldlegum og súrrealískum texta lýsir sögumaður kynferðisunaði sínum og hugrenningum þannig að enginn sem les þessa bók verður samur á eftir. Hér er farið yfir mörk venjulegra, settlegra bókmennta og skapað meistaraverk um kenndir sem fæstir þora enn að nefna á nafn. Því eins og höfundur segir þá virðist heiðarlegu fóki heimurinn heiðarlegur vegna þess „að augu þess eru vönuð. Þess vegna vekur klám því ugg. Það finnur ekki til minnstu angistar þegar það heyrir hana gala eða þegar það horfir upp í stjörnubjartan himininn. Þetta fólk nýtur aðeins „lystisemda holdsins“ að því tilskildu að þær séu bragðdaufar.“ Sögumaður hefur hins vegar tekið ákvörðun um hið gagnstæða, hann kýs fremur það „sem menn telja „saurugt“.“

Bókin er gefin út í samvinnu við Tekknólamb en það er umræðu- og útgáfusamfélag sem tók á sig formlega mynd í janúar 1998 þegar fjórmenningarnir Svanur Kristbergsson, Haukur Ástvaldsson, Geir Sigurðsson og Björn Þorsteinsson komu saman og stofnuðu leshring um jaðarbókmenntir og önnur hugðarefni sín. Áþreifanlegasti ávöxtur starfseminnar til þessa er bókaflokkurinn Tekknólamb sem gefinn er út í góðu samstarfi við Forlagið og sem Saga augans er hluti af. Stefnt er að því að gefa út eina bók á ári. Tekknólamb 1 kom út árið 2000 en það var Blýnótt eftir Hans Henny Jahnn (2000)

Buchdetails

Format Gebundene Ausgabe
Seiten 123 Seiten
Sprache Isländisch
Veröffentlicht Jan 1, 2001
Verlag Forlagið
ISBN-10 997953429X
ISBN-13 9789979534297
Zum Regal hinzufügen

Bewerte dieses Buch


Buchjournal exportieren