Sandmaðurinn
Noch keine Bewertungen
Nov 2, 2015
·
Isländisch
·
Kindle
(483 Seiten)
Format
Kindle
Seiten
483
Sprache
Isländisch
Veröffentlicht
Nov 2, 2015
Verlag
Forlagið
ISBN-10
9935114260
ISBN-13
9789935114266
Á kaldri vetrarnóttu finnst fárveikur ungur maður á reiki í Stokkhólmi. Í ljós kemur að sjö ár eru síðan hann var lýstur látinn, löngu eftir að hann og systir hans hurfu, þá á barnsaldri. Lögreglumaðurinn Joona Linna er sannfærður um að raðmorðinginn Jurek Walter hafi átt sök á hvarfi systkinanna – maður sem Joona handsamaði sjálfur fyrir þrettán árum og hefur síðan verið í strangri einangrun á geðsjúkrahúsi. Hvar hefur ungi maðurinn verið öll þessi ár? Er systir hans á lífi, lífshættulega veik eins og bróðirinn? Einhver verður að freista þess að vinna traust siðblinda glæpamannsins í æðisgengnu kapphlaupi við tímann. Þar kemur aðeins ein manneskja til greina … Sandmaðurinn er fjórða spennubók Lars Kepler en á bak við það nafn standa hjónin Alexandra og Alexander Ahndoril. Fyrri bækur þeirra, Dávaldurinn, Paganinisamningurinn og Eldvitnið, hafa slegið í gegn á Íslandi sem annars staðar og verið þýddar á fjölda tungumála.
Mystery
Thriller & Spannung
Kinder
Horror