Detalles del libro
Formato
Kindle
Páginas
82
Idioma
Islandés
Publicado
Oct 20, 2015
Editorial
Forlagið
ISBN-10
9935114112
ISBN-13
9789935114112
Descripción
Árið er 1918 og frá Reykjavík má sjá eldgosið í Kötlu mála himininn nótt sem dag. Lífið í höfuðstaðnum gengur sinn vanagang þrátt fyrir náttúruhamfarir, kolaskort og styrjöldina úti í hinum stóra heimi. Íslendingar búa sig undir að verða fullvalda þjóð. Drengurinn Máni Steinn lifir í kvikmyndunum. Sofandi dreymir hann myndirnar í tilbrigðum þar sem vefur atburðanna er slunginn þráðum úr hans eigin lífi. Vakandi hefst hann við á jaðri samfélagsins. En þá tekur spænska veikin land og leggur þúsundir bæjarbúa á sóttarsæng, sviptir hundruð lífinu. Skuggar tilverunnar dýpka. Í brjósti Mána Steins ólmast svartir vængir. Það súgar milli heima í veröld þar sem líf og dauði, veruleiki og ímyndun, leyndarmál og afhjúpanir vegast á. Sjón fékk Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2005 fyrir Skugga-Baldur. Hann hefur gefið út fjölda skáldverka sem þýdd hafa verið á erlend tungumál. Mánasteinn er handhafi Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Bóksalaverðlaunanna og Menningarverðlauna DV