Neistaflug

Neistaflug

هنوز رتبه‌بندی نشده است
Aug 17, 2014 · انگلیسی · کیندل (316 صفحات)
به قفسه اضافه کنید

به این کتاب امتیاز دهید


صدور دفتر کتاب

جزئیات کتاب

فرمت کیندل
صفحات 316
زبان انگلیسی
منتشر شده Aug 17, 2014
ناشر Katrin Agency

توضیحات

“Spenna á milli andstæðna er það sem gerir okkur að okkur sjálfum. Þær rekast saman og skjóta neistum innra með okkur. Ekki aðiens ljósar, heldur líka dökkar. Ekki aðeins í friði, heldur líka í stríði. Ekki aðeins saklausar, heldur reynslunni ríkari.”

Lundúnir 1792. Eftir að bróðir Jems deyr á æskuslóðunum í Dorsetskíri flyst fjölskyldan til borgarinnar. Þar kynnist Jem pörustúlkunni Maggý, sirkuslífinu í Lambeth og hinum seiðmagnaða nágranna sínum, skáldinu og róttæklingnum William Blake. Á meðan blóðugar fréttir berast yfir Ermasundið af byltingunni í Frakklandi takast Jem og Maggý á við andstæður sveitar og borgar, fátækt og ríkidæmi, gæfu og auðnuleysi – og því sem leynist þar á milli.
Í Neistaflugi galdrar Tracy Chevalier fram einstæða mynd af horfnum heimi, margbrotnum örlögum og vegferðinni frá bernsku til þroska. Hjartnæm saga eftir höfund metsölubókarinnar Stúlka með perlueyrnalokk.

„Komdu, við getum bæði troðið okkur inn.“ Maggý beygði sig og skreið inn í dimma múrsteinsholuna. Jem kraup á kné en fylgdi ekki á hæla hennar. „Hvað ef þeir finna okkur hérna? Við verðum króuð af eins og refur í greni. Við getum að minnsta kosti hlaupið ef við höldum okkur hér fyrir utan.“ „Þeir ná okkur ef við hlaupum. Þeir eru stærri og fleiri.“ Að lokum varð ómurinn af mönnunum til þess að Jem tók af skarið. Hann smeygði sér inn í þetta litla, rökkvaða rými og þrýsti sér upp að Maggý. Inni í ofninum var lykt af leir og reyk, ásamt daufri edikanganinni af hörundi Maggý. Þau hnipruðu sig saman í kuldanum og reyndu að róa sig niður. Eftir stutta stund féll nær algjör þögn á þau bæði, um leið og andardráttur beggja stilltist í kyrrum takti.

Í Neistaflugi galdrar Tracy Chevalier fram einstæða mynd af horfnum heimi, margbrotnum örlögum og vegferðinni frá bernsku og þroska. Hjartnæm saga eftir höfund metsölubókarinnar STÚLKA MEÐ PERLUEYRNALOKK.

Tracy Chevalier er bandarísk og ólst upp í Washington. Hún starfaði sem ritstjóri í mörg ár. Hún fluttist til Betlands árið 1984 og er nú búsett í Lundúnum ásamt eigimanni og syni.
به قفسه اضافه کنید

به این کتاب امتیاز دهید


صدور دفتر کتاب