Sjá dagar koma

Sjá dagar koma

هنوز رتبه‌بندی نشده است
Oct 17, 2025 · آیسلندی · کیندل (158 صفحات)
به قفسه اضافه کنید

به این کتاب امتیاز دهید


صدور دفتر کتاب

جزئیات کتاب

فرمت کیندل
صفحات 158
زبان آیسلندی
منتشر شده Oct 17, 2025
ناشر Forlagið
ISBN-10 9979354011
ISBN-13 9789979354017

توضیحات

Fjörug og bráðskemmtileg saga um bjartsýna menn og hnípna þjóð við upphaf 20. aldar, þróttmikinn ungmennafélagsanda og framfaraþrá.

Salvar Bernódusson er föðurlaus niðursetningur á kotbýli í Dýrafirði, unglingur með stóra drauma, táp og þor. Deyfð og drungi sem hvílir yfir þjóðlífinu í kjölfar harðinda og vesturferða er eitur í hans beinum og hann dreymir um framfarir, stórhug og stolt.

Úti við sjónarrönd sjá Vestfirðingar glæsileg amerísk seglskip á lúðuveiðum og óvænt kemst Salvar í pláss á slíku skipi. Þar með hefst hans bjarmalandsför yfir höf og lönd; slyppur og snauður heldur hann til Ameríku og snýr þaðan aftur vellauðugur, unir sér ekki heima en heldur til Englands og kemst þar í kynni við mann að sínu skapi; stórskáldið og athafnamanninn Einar Ben.

Einar Kárason kann að segja þannig frá að persónur og atburðir lifni við og sögusviðið opnist og hér fá lesendur ríkulega að njóta þeirrar gáfu sagnamannsins slynga.
به قفسه اضافه کنید

به این کتاب امتیاز دهید


صدور دفتر کتاب