Skugga-Baldur

Skugga-Baldur

هنوز رتبه‌بندی نشده است
2022 · آیسلندی · جلد نرم · 28 نسخه
به قفسه اضافه کنید

به این کتاب امتیاز دهید


صدور دفتر کتاب

توضیحات

Þegar skáldsagan Skugga-Baldur kom út árið 2003 þótti hún nokkuð óvæntur snúningur á höfundarferli Sjóns, sem fram að því hafði einbeitt sér að nútímanum og alþjóðlegum söguefnum en leitaði nú á þjóðleg mið. Rómantískur frásagnarstíll í anda 19. aldar einkennir þessa heillandi sögu þar sem íslensk náttúra og þjóðsagnaminni eru allsráðandi í fjörugum, ljóðrænum og tærum texta.

Vorið 1868 strandar stórt seglskip út af Reykjanesi, talið mannlaust en um borð finnst þroskaskert stúlka, Abba. Grasafræðingurinn Friðrik B. Friðjónsson tekur hana með sér heim í Brekku og þar búa þau saman um langa hríð. Eftir að Abba deyr dregur til frekari tíðinda þegar sóknarpresturinn Baldur Skuggason hleypur til fjalls og týnist - en sá er ekki allur þar sem hann er séður eins og Grasa-Friðrik veit. Fyrir söguna fékk Sjón Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs.

Eftirmála skrifar Anne Carson. Hún er fædd í Kanada og er starfandi kennari í forngrísku.

جزئیات کتاب

فرمت جلد نرم
صفحات 124 صفحه
زبان آیسلندی
منتشر شده Oct 1, 2022
ناشر JPV Utgafa
نسخه‌ها 28 نسخه
به قفسه اضافه کنید

به این کتاب امتیاز دهید


صدور دفتر کتاب