Slitförin

Slitförin

هنوز رتبه‌بندی نشده است
Oct 13, 2017 · آیسلندی · جلد نرم (61 صفحات)
به قفسه اضافه کنید

به این کتاب امتیاز دهید


صدور دفتر کتاب

جزئیات کتاب

فرمت جلد نرم
صفحات 61
زبان آیسلندی
منتشر شده Oct 13, 2017
ناشر Partus
ISBN-10 9935485137
ISBN-13 9789935485137

توضیحات

"Slitförin er safn ljóða sem fjalla á ágengan hátt um togstreituna við að brjótast undan áhrifavöldum bernskunnar og finna leiðina að eigin sjálfi. Leiðarstef verksins er sársaukinn sem sprettur úr nístandi sorg milli barns og foreldris. Ljóðin taka pláss, sýna afstöðu og grípa lesendur föstum tökum."
— úr umsögn bókmenntaráðgjafa Miðstöðvar Íslenskra bókmennta við afhendingu Nýræktarstyrks 2017

★★★★ 1/2
(Fjórar og hálf stjarna af fimm)
"Ein athyglisverðasta ljóðabókin fyrir þessi jól [...] Fríða er snillingur þegar kemur að skemmtilegu, jafnvel einföldu myndmáli sem sett er í nýtt og áhugavert samhengi. [...] Við annan lestur skýrist ýmislegt sem var lesanda ráðgáta við fyrsta lestur. Þannig má segja að hún kallist á við skáldsystur sína Svövu Jakobsdóttur sem má teljast eitt mesta myndmálsséní sem Ísland hefur átt, þar til nú."
— Jóhanna María Einarsdóttir / DV

"Slitförin er afar vönduð ljóðabók þar sem í tæplega fjörutíu ljóðum eru dregnar upp fjölmargar litlar myndir af augnablikum úr tilverunni, mannlegum samskiptum, brestum og tilfinningalegu ástandi. Skáldið segir þó um leið mun stærri sögu af samböndum og arfleifð kynslóðanna, vítahringjunum sem verða til upp úr erfiðu fjölskyldumynstri og hinni vandrötuðu leið sem unglingsstúlka þarf að feta til að öðlast sjálfstæða vitund ungrar konu. Eftirtektarvert er hve örugg tök höfundurinn hefur á fjölbreyttu myndmáli og hvernig hún nær með nálgun sinni að forðast tilgerð og koma hverri hugsun til skila á beinskeyttan hátt. Þrískipting bókarinnar og kaflaheitin Skurður, Slitförin og Saumar endurspegla þroskaferli ljóðmælandans og verkið er gjöful lesning í heild sinni en þó stendur hvert ljóð einnig sem sjálfstætt listaverk. Slitförin er vel uppbyggð og áhrifarík bók sem ber hæfileikum ljóðskáldsins gott vitni."
— Rökstuðningur dómnefndar vegna tilnefningu til Fjöruverðlaunanna 2018
به قفسه اضافه کنید

به این کتاب امتیاز دهید


صدور دفتر کتاب