Description
Dagur Alfreð Huntingfield fæddist á hurð á norðanverðu Íslandi á fyrri hluta 20. aldar. Bernska hans er viðburðarík, hann flyst út í heim og í lífi hans vegast á ljós og skuggar. Um leið og óvenjuleg ævi og örlög Dags Alfreðs eru í forgrunni fléttast inn í líf hans saga margbrotinna einstaklinga - og þeirrar aldar sem nú er að baki. Í þessari áhrifamiklu bók hrífur Ólafur Jóhann Ólafsson lesandann með í magnað ferðalag þar sem sögusviðið er Ísland, England, Indland og Bandaríkin. Sakleysingjarnir er stórbrotin saga sem heldur lesanda rammlega föngnum frá upphafi til enda, en hún er jafnframt heillandi frásögn um mannlegan breyskleika, djúpa einsemd, ást, söknuð og mikil örlög.
Détails du livre
Format
Broché
Langue
Islandais
Publié
Jan 1, 2005
Éditeur
Forlagið
Éditions
2 editions
ISBN-10
9979218576
ISBN-13
9789979218579