Descrizione
Í gömlum námugöngum í sænsku Dölunum finnst lík sem heldur á krossi. Í ljós kemur að krossinn tengist týndri stjörnu. Gripirnir tveir eru lykill að best varðveitta leyndarmáli veraldar.
Þegar gripirnir koma fram í dagsljósið eftir að hafa verið faldir í heila öld getur eltingarleikurinn hafist. Sagnfræðingurinn Don Titelman er bæði veiðimaður og bráð í þeirri æsispennandi atburðarás sem nú hefst – án þess að hann viti hvers vegna. Eitt er hann þó með á hreinu: lendi krossinn og stjarnan í röngum höndum er voðinn vís.
Sögulegir atburðir 19. og 20. aldar lifna hér við; ferðir landkönnuða, heimsstyrjöldin fyrri og ógnartími nasismans. Stjarna Strindbergs er ævintýraleg spennubók með sagnfræðilegu ívafi, sem heillað hefur lesendur um alla Evrópu.