Nytjastefnan

Nytjastefnan

아직 평점이 없습니다
Jan 1, 1998 · 아이슬란드어 · 하드커버 (209 페이지)
서가에 추가

이 책 평가하기


도서 일지 내보내기

책 세부 정보

형식 하드커버
페이지 209
언어 아이슬란드어
출판됨 Jan 1, 1998
출판사 Hið íslenska bókmenntafélag
ISBN-10 9979660457

설명

Hin svokallaða nytjastefna, sem á ensku nefnist utilitarianism, er einn af helstu straumunum í siðfræði 19. og 20. aldar. Höfuðrit hennar er þetta verk breska heimspekingsins Johns Stuarts Mill, sem þykir hafa sett hugmyndir nytjastefnunnar í hvað fágaðastan búning þótt hann væri ekki upphafsmaður þeirra. Mill er sá heimspekingur 19. aldar sem hvað ríkastan þátt hefur átt í að móta sýn nútímamanna á lýðræði og mannréttindi og nægir að nefna rit hans Frelsið og Kúgun kvenna í því sambandi, en bæði hafa komið út sem Lærdómsrit.

Kjarni nytjastefnunnar er að siðferðilegt réttmæti tiltekinnar breytni sé fólgið í því að hún stuðli að sem mestri almennri hamingju, en hamingja er að mati Mills fólgin í ánægju umfram sársauka. Kenningin telst því til þeirrar siðfræði sem metur réttmæti athafna út frá afleiðingum þeirra, öfugt við kenningar sem dæma þær réttar eða rangar í sjálfum sér. Nytjastefnan hefur jafnan mátt sæta ýmiss konar gagnrýni. Mönnum hefur sýnst hún leiða til þess að verstu illvirki geti í sumum tilfellum talist rétt breytni ef afleiðingin er aukin hamingja. Það er talið óraunhæft að ætla fólki sífellt að þurfa að reikna út þá hamingju og óhamingju sem hlýst af öllum mögulegum afleiðingum gjörða þess og þá þykir auðséð að margt annað en ánægja sé eftirsótt og eftirsóknarvert.

Rit Mills er glæsileg vörn fyrir nytjastefnuna þar sem hann leysir hugvitssamlega úr slíkum vandamálum. Fyrir það fyrsta eru hversdagslegar hugmyndir okkar um rétt og rangt mótaðar af reynslu fyrri kynslóða sem stjórnuðust ómeðvitað af nytjahyggju, þannig að morð, lygar og annað sem dró úr almennri hamingju var fordæmt. Fólk getur því stuðst við þetta innsæi en reiknað út afleiðingar í þeim tilfellum þar sem tvö sjónarmið stangast á. Þess ber þó að geta að Mill var gagnrýninn á viðtekið siðferði og leit svo á að það yrði að endurskoða í ljósi nytjahyggju. Enn fremur getur ánægja að hans mati verið til í misgöfugum myndum sem eru misþung á metunum. Þannig setur hann fram heilsteypta og fágaða kenningu um grundvallaratriði mannlegs lífs.

Afar gagnlegur er inngangur Rogers Crisp að verkinu þar sem hann ræðir á gagnrýninn hátt kenningu Mills, mótbárur gegn henni og mögulegar úrlausnir.
서가에 추가

이 책 평가하기


도서 일지 내보내기