Sjóræninginn

Sjóræninginn

아직 평점이 없습니다
2015 · 아이슬란드어 · 킨들
서가에 추가

이 책 평가하기


도서 일지 내보내기

설명

„Framtíðin lá opin fyrir framan mig eins og svartur hellir. Ég óttaðist hana en vissi samt ekki hvað það var sem ég óttaðist. Ég óttaðist óvissuna. Óttaðist þennan heim sem var eins og hann væri gerður fyrir mig. Ég óttaðist einsemdina, að vera alltaf einn og útundan, að enginn myndi skilja mig eða finnast vænt um mig. Verð ég alltaf skrítinn? Verð ég alltaf eins og geimvera frá annarri plánetu?“ Rauðhærði drengurinn Jón stendur að loknum grunnskóla á vegamótum og upplifir sig algjörlega utangarðs í samfélaginu. Hann fjallar hér hispurslaust um hrakfarir sínar og áföll í íslensku skólakerfi, lýsir svæsnu einelti sem hann varð fyrir, tímabili sínu sem Hlemmari, misjafnlega lukkaðri framgöngu sinni í íslensku atvinnulífi og hörmulegum ferli sem rokksöngvari. En þó grillir í ljós; haldreipin í tilverunni verða Nina Hagen og Johnny Rotten og svo Krapotkín fursti – pönkið og anarkisminn fela í sér vonina um betra og skemmtilegra líf. Sjóræninginn er skálduð ævisaga Jóns Gnarr eins og Indjáninn og sjálfstætt framhaald þeirrar bókar. Þótt frásögn Jóns sé einatt fyndin er hún bæði einlæg og tregafull, enda má segja að öll vegferð höfundar um íslenska menntakerfið sé vörðuð harkalegum árekstrum, bæði hugmyndalegum og raunverulegum.

책 세부 정보

형식 킨들
페이지 170 페이지
언어 아이슬란드어
출판됨 10월 20, 2015
출판사 Forlagið
ISBN-10 9979333626
ISBN-13 9789979333623
서가에 추가

이 책 평가하기


도서 일지 내보내기