설명
Árið 1987 var morð framið í flæðarmálinu á sænskri eyju. Fórnarlambið var ung ófrísk kona en þrátt fyrir mikla vinnu rannsóknarlögreglunnar upplýstist morðið aldrei þar sem kennsl voru ekki borin á líkið og gerendurnir komust undan. Árið 2011 velur ungur lögreglunemi, Olivia Rönning, málið sem verkefni í lögregluskólanum og fyrr en varir er hún komin á kaf í þessa dularfullu morðgátu. En Tom Stilton, sem rannsakaði málið á sínum tíma, virðist horfinn af yfirborði jarðar. Á sama tíma er hópur heimilisleysingja í Stokkhólmi ofsóttur af ungum glæpamönnum sem svífast einskis. Stórstreymi er fyrsta bókin um þau Oliviu Rönning og Tom Stilton eftir Cillu og Rolf Börjlind, handritshöfunda Beck-myndanna. Vinsælir sjónvarpsþættir hafa verið gerðir eftir sögunni. Ísak Harðarson þýddi.
책 세부 정보
형식
킨들
페이지
488 페이지
언어
아이슬란드어
출판됨
8월 23, 2022
출판사
Forlagið
판본
판본 67개
ISBN-10
9935293831
ISBN-13
9789935293831