Opis
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Edinborg verður Isabel Dalhouse vitni að því að ungur maður hrapar niður af svölum og deyr. Sem siðfræðingur með sterka tilfinningu fyrir réttu og röngu, en ekki síst óslökkvandi forvitni, ákveður Isabel að komast til botns í málinu. Datt ungi maðurinn – eða var honum hrint? Og hvers vegna þá? – Hin stórskemmtilega Isabel Dalhouse, aðalpersóna bókanna um Sunnudagsklúbb heimspekinganna, er enginn aukvisi og fæst jöfnum höndum við morðgátur, spillingarmál og að leysa leyndardóma lífsgátunnar.
Alexander McCall Smith er þekktastur fyrir bækurnar um Kvenspæjarastofu númer eitt sem farið hafa sigurför um heiminn, og einnig notið mikilla vinsælda á Íslandi. Líkt og sögur hans um Kvenspæjarastofuna hafa bækurnar um Sunnudagsklúbb heimspekinganna að geyma sjaldgæfa blöndu af spennu, gamansemi og mannúð.

Szczegóły książki
Format
Miękka okładka
Strony
243 stron
Język
Islandzki
Opublikowany
Jan 1, 2006
Wydawca
Mal Og Menning
Wydania
55 editions
ISBN-10
9979327804