Morðið á ferjunni

Morðið á ferjunni

Ainda sem avaliações
2009 · Islandês · Brochura
Adicionar à Estante

Avalie este livro


Exportar Diário de Leitura

Descrição

Nakið lík ungrar konu finnst í skipaskurði í Svíþjóð og augljóst er að hún hefur verið myrt – en hver var hún, hvaðan kom hún og hver varð henni að bana? Lögreglumaðurinn Martin Beck er kallaður til ásamt félögum sínum og þeir hefja rannsókn sem verður bæði löng og ströng. Með hjálp Interpol komast þeir að því að konan hét Roseanna McGraw og hafði verið farþegi um borð í ferju. En hver hinna farþeganna 85 er sá seki?

Maj Sjöwall og Per Wahlöö byrjuðu á ritröðinni Skáldsögu um glæp árið 1965 og var Morðið á ferjunni fyrsta bókin. Í kjölfarið fylgdu níu aðrar og náðu bækurnar miklum vinsældum. Markmið höfundanna var að nota glæpi og rannsóknir á þeim sem spegil á samfélagið og má segja að bókaflokkurinn hafi valdið straumhvörfum í norrænni glæpasagnaritun. Um leið voru sögurnar frumlegar og spennandi og hafa staðist tímans tönn. Þær hafa verið gefnar út víða um heim og margar þeirra verið kvikmyndaðar.

Morðið á ferjunni kom fyrst út á íslensku árið 1977 í þýðingu Þráins Bertelssonar. Rithöfundurinn Henning Mankell ritar formála þessarar útgáfu.

Detalhes do Livro

Formato Brochura
Páginas 276 páginas
Idioma Islandês
Publicado jan 1, 2009
Editora Mál og menning
Adicionar à Estante

Avalie este livro


Exportar Diário de Leitura