Описание
Á stúlknaheimili norður af Sundsvall í Svíþjóð gerast voveiflegir atburðir. Á dimmu haustkvöldi finnst ein stúlknanna myrt og skömmu síðar gæslukona. Lík ungu stúlkunnar er í undarlegri stellingu: með hendurnar fyrir andlitinu. Engin vitni voru að voðaverkunum en nokkrum dögum eftir að þau eru framin hringir kona í Stokkhólmi í lögregluna og segist geta veitt upplýsingar – gegn gjaldi. Í þetta skipti er lögregluforinginn Joona Linna nánast ráðþrota. Hvaða öfl eru þarna að verki? Eldvitnið er þriðja bók Lars Kepler en á bak við höfundarnafnið eru hjónin Alexandra og Alexander Ahndoril. Fyrri bækurnar tvær, Dávaldurinn og Paganinisamningurinn, hafa einnig komið út á íslensku og slógu rækilega í gegn hér eins og erlendis. Jón Daníelsson þýddi.
Детали книги
Формат
Kindle
Страницы
533 страниц
Язык
Исландский
Опубликовано
Jan 26, 2021
Издатель
Forlagið
Издания
85 editions
ISBN-10
9935291278
ISBN-13
9789935291271