Þriðja röddin

Þriðja röddin

Оценок пока нет
2023 · Исландский · Kindle · Изданий: 48
Добавить на полку

Оценить эту книгу


Экспортировать журнал книг

Описание

Í Stokkhólmi finnst starfsmaður hjá Tollinum hengdur heima hjá sér. Lögreglan úrskurðar að um sjálfsmorð sé að ræða en þegar Olivia Rönning dregst inn í málið áttar hún sig á að ekki er allt sem sýnist. Og allt í einu er hún, þvert gegn vilja sínum, komin á kaf í morðrannsókn. Í Marseille er kona myrt og þegar Abbas, gamall ástmaður hennar, kemst að því fer hann á vettvang til að kanna málið. Með í för er vinur hans, Tom Stilton, sem óðum er að ná sér á strik eftir að hafa keyrt á vegg í lífi og starfi. Málin tvö fléttast saman með óvæntum hætti og nú þurfa þau Olivia og Tom að jafna gamlan ágreining og taka höndum saman. Þriðja röddin er hraður og æsispennandi krimmi eftir reyndustu handritshöfunda Svíþjóðar, Cillu og Rolf Börjlind, sem meðal annars hafa skrifað fjölda Beckþátta. Fyrsta bókin um Oliviu og Tom, Stórstreymi, hlaut afar góðar viðtökur þegar hún kom út á íslensku en bækurnar um tvíeykið hafa selst í meira en 3,3 milljónum eintaka. Hilmar Helgu- og Hilmarsson þýddi.

Детали книги

Формат Kindle
Страницы 500 страниц
Язык Исландский
Опубликовано апр 17, 2023
Издатель Forlagið
Издания Изданий: 48
ISBN-10 993529451X
ISBN-13 9789935294517
Добавить на полку

Оценить эту книгу


Экспортировать журнал книг