描述
Fáir höfundar takast á við stórar spurningar um manneskjuna og þann heim sem við byggjum af jafn nístandi dirfsku og skilyrðislausum heiðarleika og Vigdís Grímsdóttir. Í Þögninni rær hún ef til vill lengra út á djúpið en nokkru sinni fyrr, setur ást og auðsveipni andspænis kúgun og vitfirringu í slíkt samhengi að lesandi getur ekki vikið sér undan ábyrgð. Hver er fórnarlamb og hver er böðull? Hvenær drepur maður mann? Í þessu margslungna og vel skrifaða verki þar sem mennska og myrkur leikast á er fátt sem sýnist og engar leiðir auðrataðar, engar lausnir einfaldar.
書籍詳情
格式
Kindle
頁數
359 頁
語言
冰島的
已出版
Apr 11, 2017
出版商
Forlagið
版本
2 editions
ISBN-10
9979105461
ISBN-13
9789979105466