Buchdetails
Beschreibung
Hulduslóð er spennandi sakamálasaga, en hún er sönn og enginn vafi leikur á hver glæpamaðurinn er. Maria Eriksson segir sögu sína hispurslaust, segir frá ljúfum stundum jafnt sem skelfingunni og að lokum snýr Maria vörn í sókn. Liza Marklund færir í stílinn. Þær breyta nöfnum og umhverfi svo úr verður heimildarskáldsaga. Þær dæma ekki, lesandinn fær að gera það sjálfur og getur dregið eigin ályktanir af framvindunni. Saga Mariu gerist í einu háþróaðasta lýðræðisríki heims, sagan er ekkert einsdæmi, hún endurtekur sig um allan heim, óháð trúarbrögðum og kynþáttum. En stóra spurningin er: Hvers vegna viðgengst að meintir glæpamenn leiki lausum hala meðan fórnarlömbin fara huldu höfði eða flýja land?