Hulduslóð

Hulduslóð

Nog geen beoordelingen
Jan 1, 1995 · IJslands · Paperback
Toevoegen aan Plank

Beoordeel dit boek


Boekjournaal exporteren

Boekdetails

Formaat Paperback
Taal IJslands
Gepubliceerd Jan 1, 1995

Beschrijving

MARIA ERIKSSON, býr í venjulegum bæ í Svíþjóð og vinnur í banka þegar hún kynnist manninum með svörtu augun. Hún verður yfir sig ástfangin, þau trúlofast og eignast dóttur. Fljótlega grípur hann til ofbeldis, hótar, lemur og nauðgar. Þegar Maria kynnist öðrum manni og giftist honum sígur enn á ógæfuhliðina. Líf þeirra breytist í martröð og yfirvöld standa átakanlega úrræðalaus þrátt fyrir morðtilraunir og ítrekað ofbeldi. Mariu er gert að fara huldu höfði með fjölskyldu sinni en ofbeldismaðurinn gengur laus og gefst ekki upp. Hann leitar og finnur. Að lokum er aðeins ein leið fær: Fjölskyldan neyðast til að flytja úr landi.

Hulduslóð er spennandi sakamálasaga, en hún er sönn og enginn vafi leikur á hver glæpamaðurinn er. Maria Eriksson segir sögu sína hispurslaust, segir frá ljúfum stundum jafnt sem skelfingunni og að lokum snýr Maria vörn í sókn. Liza Marklund færir í stílinn. Þær breyta nöfnum og umhverfi svo úr verður heimildarskáldsaga. Þær dæma ekki, lesandinn fær að gera það sjálfur og getur dregið eigin ályktanir af framvindunni. Saga Mariu gerist í einu háþróaðasta lýðræðisríki heims, sagan er ekkert einsdæmi, hún endurtekur sig um allan heim, óháð trúarbrögðum og kynþáttum. En stóra spurningin er: Hvers vegna viðgengst að meintir glæpamenn leiki lausum hala meðan fórnarlömbin fara huldu höfði eða flýja land?

Genres

Mysterie Thriller & Spanning Horror
Toevoegen aan Plank

Beoordeel dit boek


Boekjournaal exporteren