Buchdetails
Beschreibung
Tveir drengir fæddust nákvæmlega þegar klukkan sló, Shiva sem hlaut hernaðarkunnáttu að gjöf, og Saleem Sinai en honum gerði stundin kleift að horfa inn í hjörtu og hugi manna. Þeim var hins vegar víxlað. Shiva, sem var af múslímskum aðalsætttum, lendir í höndum götusöngvara, en Saleem, fátæklingurinn með gúrkunefnið, hafnar hjá auðmannafjölskyldu. Saleem fær alla athyglina og Nehru forsætisráðherra sendir bréf þar sem hann segir að örlög hans verði ævinlega samfléttuð örlögum Indlands. Í tímans rás verða miðnæturbörnin Saleem og Shiva svarnir fjendur ...
Miðnæturbörn er einhver rómaðasta skáldsaga 20. aldar og gerði Salman Rushdie heimsfrægan í einu vetfangi. Hún hlaut hin virtu Booker-verðlaun árið 1981 og síðar var hún valin besta verðlaunabók þeirra verðlauna; Booker of Bookers. Miðnæturbörn hefur ævinlega lent í efstu sætum þegar valdar hafa verið bestu og áhrifamestu skáldsögur 20. aldar og hún var einnig á 100 bóka lista norsku bókaklúbbanna í vali frægra rithöfunda á bestum bókum allra tíma.