Miðnæturbörn

Miðnæturbörn

还没有评分
2003 · 冰岛语 · 精装书
加入书架

评价这本书


导出书籍日志

描述

Indland fæddist þegar klukkan sló tólf á miðnætti 15. ágúst 1947 og á fyrsta klukkutímanum í sögu landsins kom 1001 barn í heiminn. Þessi miðnæturbörn voru öll gædd sérstæðum hæfileikum: stelpa frá Goa gat margfaldað fiska, einn drengurinn gat stækkkað og minnkað að vild, bláeygt barn frá Kasmír gat breytt kynferði sínu, hvassyrt stúlka gat veitt líkamleg sár með orðum sínum ...

Tveir drengir fæddust nákvæmlega þegar klukkan sló, Shiva sem hlaut hernaðarkunnáttu að gjöf, og Saleem Sinai en honum gerði stundin kleift að horfa inn í hjörtu og hugi manna. Þeim var hins vegar víxlað. Shiva, sem var af múslímskum aðalsætttum, lendir í höndum götusöngvara, en Saleem, fátæklingurinn með gúrkunefnið, hafnar hjá auðmannafjölskyldu. Saleem fær alla athyglina og Nehru forsætisráðherra sendir bréf þar sem hann segir að örlög hans verði ævinlega samfléttuð örlögum Indlands. Í tímans rás verða miðnæturbörnin Saleem og Shiva svarnir fjendur ...

Miðnæturbörn er einhver rómaðasta skáldsaga 20. aldar og gerði Salman Rushdie heimsfrægan í einu vetfangi. Hún hlaut hin virtu Booker-verðlaun árið 1981 og síðar var hún valin besta verðlaunabók þeirra verðlauna; Booker of Bookers. Miðnæturbörn hefur ævinlega lent í efstu sætum þegar valdar hafa verið bestu og áhrifamestu skáldsögur 20. aldar og hún var einnig á 100 bóka lista norsku bókaklúbbanna í vali frægra rithöfunda á bestum bókum allra tíma.

书籍详情

格式 精装书
页数 459 页
语言 冰岛语
已发布 Jan 1, 2003
出版商 Mal Og Menning
ISBN-10 9979324554
ISBN-13 9789979324553
加入书架

评价这本书


导出书籍日志