Beschreibung
Alexander og Védís eru varúlfar. Þau hafa helgað líf sitt því að kenna öðru fólki með varúlfagen að hafa hemil á eðli sínu.
Nú er kominn fram á sjónarsviðið stórhættulegur óvinur. Hinn svartklæddi öfgahópur Caput sveiflar flugbeittum sveðjum og ætlar sér ekkert minna en að útrýma öllum varúlfum á jörðinni.
Sögur herma að nú stefni Caput til Íslands, eyjar berserkjanna og fæðingarstaðar sjálfs varúlfagensins.
Þegar Alexander kemur heim í risíbúðina í Reykjavík eitt síðdegið er Védís horfin. Þar með ganga í garð myrkir tímar.
Niðdimm nótt sem ætlar engan endi að taka.