Mannlíf milli húsa

Mannlíf milli húsa

Brak ocen
2018 · Islandzki · Miękka okładka · Wydania: 9
Dodaj do półki

Oceń tę książkę


Eksportuj Dziennik Książki

Opis

Hin sígilda bók danska arkitektsins Jan Gehl Mannlíf milli húsa kemur út í sinni fyrstu íslenska þýðingu í nóvember 2018. Bókin, sem kom fyrst út á dönsku árið 1971 undir heitinu Livet mellem husene, hefur verið gefin út á tæplega fjörutíu tungumálum og er enn talin vera besta almenna ritið á sínu sviði.
​
Í rúmlega hálfa öld hefur arkitektinn Jan Gehl beint sjónum að hvunndagsathöfnum fólks í útirými borga. Í bókinni Mannlíf milli húsa, sem byggir á borgarlífsrannsóknum höfundar, eru athafnir fólks í almenningsrými greindar út frá eðli þeirra og eiginleikum. Í myndum og texta eru dregin fram þau margbreytilegu gæði sem felast í mannlífi borga og byggða og rýnt í forsendur út frá hönnun og skipulagi. Bókin, sem er skyldulesning í arkitektaskólum um allan heim, ætti að vera í handraðanum hjá skipulagsyfirvöldum, fagfólki, fjárfestum, þróunar- og uppbyggingaraðilum og öllum almenningi. Það var einmitt markmið höfundar með útgáfu bókarinnar á sínum tíma að gera þessa umræðuhefð aðgengilega fyrir sem flesta.

Upphaflega var Mannlíf milli húsa uppgjör við kaldranalegar borgir og íbúðahverfi eftirstríðsáranna. Síðan eru liðin tæp fimmtíu ár en bókin á ennþá fullt erindi eins og Jan Gehl kemst að orði í formála sjöundu dönsku útgáfu bókarinnar frá árinu 2017: „Undanfarnir áratugir hafa sýnt svo ekki verður um villst að viðleitnin til þess að styrkja mannlíf í borgum og byggðum er enn ofarlega á baugi. Samfélagsþróun og allir heimsins rafrænu miðlar hafa ekki dregið úr mikilvægi þess að fólk komi saman, nema síður sé.“

Szczegóły książki

Format Miękka okładka
Strony 208 stron
Język Islandzki
Opublikowany sty 1, 2018
Wydawca Úrbanistan
Wydania Wydania: 9
ISBN-10 9935244326
ISBN-13 9789935244321
Dodaj do półki

Oceń tę książkę


Eksportuj Dziennik Książki