Saga listarinnar

Saga listarinnar

尚無評分
1997 · 冰島的 · 精裝書 · 2 個版本
加入書架

評價這本書


出口書籍日誌

描述

Það er mikil kúnst að segja listasöguna frá örófi alda og fram á okkar daga þannig að lesendur skilji samhengið og séu með á nótunum. Enginn þykir hafa leyst þetta erfiða verkefni eins vel og prófessor E.H. Gombrich. Fer þar saman einstæð þekking á efninu og meistaralegir hæfileikar til þess að rekja söguna af látleysi, skilningi og virðingu þannig að hellaristur, nútímalist og allt þar á milli verður jafn ljóslifandi fyrir okkur. Sagan af tjáningarþörf mannfólksins verður ein órofin keðja.

Lesendur Sögu listarinnar skipta milljónum þar sem nær hálf öld er liðin frá fyrstu útgáfu hennar á ensku. Bókin hefur oftsinnis verið endurskoðuð og er þessi þýðing unnin eftir 16. útgáfu hennar.

Saga listarinnar eftir Gombrich hefur verið þýdd á 30 tungumál og talar sú staðreynd sínu máli um bókina. Hún hefur að geyma tæplega 400 litmyndir af málverkum, höggmyndum og merkum mannvirkjum, fornum og nýjum.

Halldór Björn Runólfsson listfræðingur þýddi.

書籍詳情

格式 精裝書
頁數 688 頁
語言 冰島的
已出版 Jan 1, 1997
出版商 Mál og menning
ISBN-10 9979315016
ISBN-13 9789979315018
加入書架

評價這本書


出口書籍日誌