Description
Himmlers Hirn heißt Heydrich = Heilinn í Himmler heitir Heydrich. Prag 1942. Tveir menn eru komnir frá London til að drepa þann þriðja, Reinhard Heydrich, yfirmann Gestapo, leyniþjónustu nasista, og skipuleggjanda Endanlegu lausnarinnar á „gyðingavandamálinu“, manninn sem ýmist var kallaður Böðullinn í Prag, Ljóshærða villidýrið eða Hættulegasti maður Þriðja ríkisins. Allar persónurnar voru til eða eru enn til. Allt sem sagt er frá gerðist í raun og veru en bak við frásögnina af undirbúningi tilræðisins leynist annað stríð: Stríðið milli skáldskapar og sögulegs sannleika. Laurent Binet lætur það vera að skálda í eyðurnar, hann fylgir staðreyndum málsins – en tekur samt skýra afstöðu til þeirra persóna sem koma við sögu. Laurent Binet fékk Prix Goncourt, helstu bókmenntaverðlaun Frakka, fyrir þessa frumraun sína.
Book Details
Format
Kindle
Pages
269 pages
Language
Icelandic
Published
Oct 2, 2015
Publisher
Forlagið
Editions
35 editions
ISBN-10
9935114244
ISBN-13
9789935114242