Mýrarljós

Mýrarljós

No ratings yet
2025 · Icelandic · Paperback
Add To Shelf

Rate this book


Export Book Journal

Description

MORÐIN Í ÅRE

Glæpahöfundur ársins í Svíþjóð 2024

Síðustu vikuna í janúar fer sex manna hópur í skemmtiferð til Åre þar sem ætlunin er að skíða og djamma. En eitthvað fer úrskeiðis í fjörinu og skyndilega eru þau bara fimm. Enginn þeirra getur skýrt hvað gerðist. Var þetta slys eða kaldrifjað morð? Ýmsar spurningar vakna og tortryggnin innan hópsins vex.

Lögreglumennirnir Daniel Lindskog og Hanna Ahlander eru kallaðir til að stýra rannsókn málsins. En bæði eru upptekin af einkamálum sínum. Daniel er nýlega fráskilinn og uppfullur af sektarkennd gagnvart dóttur sinni. Hanna er í helgarferð með nýja kærastanum en þjökuð af tilfinningum til Daniels.

Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.

Mýrarljós er fjórða bókin í hinni æsispennandi seríu MORÐIN Í ÅRE. Fyrri bækurnar, Helkuldi, Daladrungi og Yfirbót, hafa fengið frábærar viðtökur.

„Ein allra besta bók Vivecu Sten.“– Dagens Nyheter

„Viveca Sten skrifar glæpasögur í hæsta gæðaflokki. Hún leggur mikla alúð við persónusköpun, tvinnar saman ólíka söguþræði án þess að það bitni á spennunni allt til hádramatískra endaloka.“ – Sænska glæpasagnaakademían

Vivica Sten er einn virtasti glæpasagnahöfundur Norðurlanda. Bókaflokkur hennar um MORÐIN Í ÅRE hefur slegið í gegn og hefur Netflix hefur nú gert sjónvarpsþáttaröð byggða á bókunum. Mjög vinsælir sjónvarpsþættir voru líka gerðir um Sandhamn-bókaflokkinn.

Book Details

Format Paperback
Pages 443 pages
Language Icelandic
Published Jan 1, 2025
Publisher Ugla
ISBN-10 9935219801
ISBN-13 9789935219800
Add To Shelf

Rate this book


Export Book Journal