Description
Nóbelsverðlaunahafinn François Mauriac er einn þekktasti og mikilvirkasti höfundur Frakka á síðustu öld. Kristin lífsviðhorf setja mark sitt á verk Mauriacs, hann beinir sjónum að sálarlífi persóna sinna og að spurningum um ábyrgð þeirra fyrir lífi sínu og gerðum, sekt og sakleysi. Jafnframt því er honum lagið að seiða fram mynd umhverfis, oftast átthaga hans sjálfs í Suðvestur-Frakklandi, og lýsa áhrifum þess á mannfólkið.
Þessi einkenni koma vel fram í Thérèse Desqueyroux sem er ein þekktasta saga hans og lýsir heimferð konu sem hefur verið stefnt fyrir rétt, ákærð fyrir að hafa reynt að ráða mann sinn af dögum, hugleiðingum hennar og minningum á leiðinni, uppgjöri hennar við mann sinn er heim kemur og þeirri refsingu er hún verður að þola af honum.

Book Details
Format
Paperback
Pages
173 pages
Language
Icelandic
Published
Jan 1, 2006
Publisher
Hávallaútgáfa
ISBN-10
9979954698
ISBN-13
9789979954699